Jæja þá eru prófin byrjuð og hryllingsprófið er afstaðið, Vúhúúúú!!! Get ekki gengið svo langt og sagt að mér hafi gengið eitthvað sérstaklega vel... en mér gekk amk ekki eins illa og ég átti von á ;)
Ég er svo einstaklega heppin í þessari próftörn, hún er eins lengi og hugast getur hjá mér, alveg frá fyrsta degi, fram á þann síðasta :( Þau raðast reyndar nokkuð ágætlega.
Svo eftir prófin ætlar míns sko að skella sér í rafting niður Hvítá :D Búin að plata Hörpu vinkonu og frönsku vini mína í skólanum til að skella sér með mér í "skólaferðalag". Farið verður niður Hvítá, svo verður borðað , drukkið og gist í Skálholti :D Hlakka ógó til!! Hef aldrei farið í rafting þannig þetta er voða spennó ;)
Wednesday, April 25, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment