Wednesday, April 25, 2007

Þessi tími ársins

Jæja þá eru prófin byrjuð og hryllingsprófið er afstaðið, Vúhúúúú!!! Get ekki gengið svo langt og sagt að mér hafi gengið eitthvað sérstaklega vel... en mér gekk amk ekki eins illa og ég átti von á ;)

Ég er svo einstaklega heppin í þessari próftörn, hún er eins lengi og hugast getur hjá mér, alveg frá fyrsta degi, fram á þann síðasta :( Þau raðast reyndar nokkuð ágætlega.

Svo eftir prófin ætlar míns sko að skella sér í rafting niður Hvítá :D Búin að plata Hörpu vinkonu og frönsku vini mína í skólanum til að skella sér með mér í "skólaferðalag". Farið verður niður Hvítá, svo verður borðað , drukkið og gist í Skálholti :D Hlakka ógó til!! Hef aldrei farið í rafting þannig þetta er voða spennó ;)

Monday, April 16, 2007

Aumingja Shiloh

Mér finnst það ákaflega furðulegt að neita barninu um móðurást, vegna þess að hin börnin hafa ekki notið mikilla hlunninda í lífinu :s Hin börnin njóta amk móðurástar núna, skrítið að Shiloh skulu ekki fá það líka... það er ekki henni að kenna að hún skuli vera fædd með silfurskeið í munninum!! Flest börn myndu eflaust gefa allt til þess eins og vera elskuð og sýnt alúð af báðum foreldrum.

Bara skil ekki þau rök; Víst að þau hafa ekki fengið allt (fyrr en núna) á hún ekki skilið að fá allt.

En hvað er satt og logið í þessu máli, veit ég ekki.

Thursday, April 12, 2007

Ég er nú sammála henni Eyrúnu í þessu máli.

Ég las þessa grein áður en ég heyrði íslensku viðbrögðin og mér stökk ekki bros!
Ég get skilið boðskapinn hjá þessum gaur - árás á Íran er stupid! En að tala um að sprengja okkur upp með slíkri léttúð vekur bara óhug hjá mér, ekki hlátur!! Auðvitað veit ég að það á engin eftir að taka þessu það alvarlega og gera eitthvað í málunum en mér er alveg sama!

Talandi húmor, þá var ég að tala við útlending um daginn um Silvíu Nótt. Ótrúlegt en satt þá horfir þessi útlendingur á Eurovision og vægast sagt fannst honum Silvía Nótt ÖMULEG.

Ég auðvitað tók mig til og útskýrði þetta allt saman; að þetta væri leikkona og þetta væri allt grín og hún hefði svo notað þetta í sjónvarpsþáttinn sinn. Hefðum við bara haft lengri tíma, þá hefði sko heimsbyggðin fattað að þetta var allt saman "an act" og hlegið með okkur.

Ég var hinsvegar kjaftstopp af svarinu hans.

"It doesn´t matter to me if Agusta Eva is nice person in real life and that this was all a joke. Where I come from, publicly humiliating other people, insulting people in a harsh way and making jokes at other peoples expense, is just not funny - and now you tell me, that is was all because she was making TV material - that makes it even worse. But I´m glad you guys could at least laugh about this. I know people who were truly hurt by her remarks and conduct, which she never apologized for."

I couldn't argue with that!
One-humor-fits-all clearly doesn't work! ;)